VEÐRIÐ Í DAG O.FL.
MÁNÁRBAKKI KÓPASKER  HEKLA KATLA               FRÉTTAVEFIR:  641.IS  640.IS Kópasker     AÐALSKIPULAG: 2008-2020
12.06.2010  |  Hreppsnefnd
  FUNDARGERÐ

Fundur haldinn í hreppsnefnd  Tjörneshrepps laugardagin  12. júní 2010  kl. 1300  í Sólvangi. Allir aðalmenn mættir. Oddviti setti fund og stjórnaði honum.

  • 1 Álit endurskoðanda

  Kynnt álit endurskoðanda vegna samþykktar hreppsnefndar frá 22. mai 2010

  • 2 Umsögn um frummatsskýrslu

            Umsögn um frummatsskýrslu Álvers Alcoa á Bakka og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka.  Eftirfarandi umsögn samþykkt samhljóða: „ Hreppsnefnd Tjörneshrepps telur frummatsskýrslu vegna Álvers Alcoa á Bakka engan veginn fullnægjandi til glöggvunar á þeim atriðum sem afdrifaríkust eru fyrir næsta nágrenni verksmiðjunnar. Þannig er loftdreifingarspá ekki byggð á traustum gögnum úr vísindalegum rannsóknum heldur mati á líkindum út frá reynslu og reiknuðu meðaltali frá álbræðslum á ýmsum öðrum stöðum. Á sama hátt er útilokað að meta sjónræn áhrif af framkvæmdunum þegar um er að ræða mannvirki, sem enn hafa ekki verið hönnuð, og þar af leiðandi verður að líta svo á að tilraunir framkvæmdaaðila til að sýna þau á myndum séu marklausar með öllu. "  Þá var svohljóðandi umsögn vegna frummatsskýrlu á háspennulínum frá Kröflu og Þeistareykjum einnig samþykkt: „ Hreppsnefnd Tjörneshrepps lýsir áhyggjum vegna þeirra neikvæðu sjónrænu áhrifa sem háspennumannvirkin gætu haft á ferðamennsku og útivist í næsta nágrenni við Bakka "

 

 

Fleira ekki bókað fundargerð samþykkt, fundi slitið kl. 1445

 

 

 

 

28.01.2012  |  Hreppsnefnd
28.12.2011  |  Hreppsnefnd
21.12.2011  |  Hreppsnefnd
19.11.2011  |  Hreppsnefnd
29.09.2011  |  Hreppsnefnd
08.07.2011  |  Hreppsnefnd
15.05.2011  |  Hreppsnefnd
30.03.2011  |  Hreppsnefnd
03.02.2011  |  Hreppsnefnd
09.01.2011  |  Hreppsnefnd
30.12.2010  |  Hreppsnefnd
12.12.2010  |  Hreppsnefnd
18.11.2010  |  Hreppsnefnd
29.08.2010  |  Hreppsnefnd
25.06.2010  |  Hreppsnefnd
18.06.2010  |  Hreppsnefnd
12.06.2010  |  Hreppsnefnd
22.05.2010  |  Hreppsnefnd
24.04.2010  |  Hreppsnefnd
24.03.2010  |  Hreppsnefnd