Fundur var haldinn í hreppsnefnd Tjörneshrepps föstudaginn 18. júní, klukkan 16:00. Mætt voru Eiður Árnason, Jóhanna R. Pétursdóttir, Jón Gunnarsson, Steinþór Heiðarsson og Smári Kárason.
Aldursforseti nýkjörinnar sveitarstjórnar, Eiður Árnason, setti fund og bauð fundarmenn velkomna til starfa. Þá var gengið til dagskrár.
1. Kosning oddvita til eins árs: Kosningu hlaut Steinþór Heiðarsson með 5 atkvæðum. Nýkjörinn oddviti tók nú við stjórn fundarins og þakkaði það traust sem honum væri sýnt.
2. Kosning varaoddvita til eins árs: Kosningu hlaut Eiður Árnason með 4 atkvæðum. Hann var jafnframt skipaður ritari til eins árs.
3. Kosning kjörnefndar til eins árs: Kosningu hlutu Eiður Árnason, Kristján Kárason og Ragnhildur H. Ingólfsdóttir. Til vara: Sigrún Ingvarsdóttir, Jófríður Hallsdóttir og Sveinn Egilsson.
4. Kosning skoðunarmanna hreppsreikninga til eins árs: Kosin voru Kristján Kárason og Jófriður Hallsdóttir. Til vara: Bjarni Aðalgeirsson.
5. Kosning fulltrúa í byggingarnefnd: Kosningu hlutu til eins árs Eiður Árnason og til vara Jónas Jónasson.
6. Kosning forðagæslumanns: Kosinn var til eins árs Jón Gunnarsson.
7. Kosning fulltrúa í búfjáreftirlitsnefnd: Kosnir voru Jón Gunnarsson, aðalmaður, og varamaður Jónas Jónasson.
8. Kosning tveggja fulltrúa í stjórn Sólvangs: Kosin voru Smári Kárason og Margrét Bjartmarsdóttir.
9. Kosning fulltrúa á aðalfund Eyþings: Aðalfulltrúi var kjörinn Steinþór Heiðarsson og til vara Eiður Árnason.
10. Kosning fulltrúa í héraðsnefnd: Aðalfulltrúi Steinþór Heiðarsson og varafulltrúi Jóhanna R. Pétursdóttir.
11. Kosning fulltrúa á aðalfund Sambands íslenskra sveitarfélaga: Aðalfulltrúi Steinþór Heiðarsson og varafulltrúi Smári Kárason.
12. Kosning fulltrúa á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga: Aðalfulltrúi kosinn til fjögurra ára Steinþór Heiðarsson og varafulltrúi Kristján Kárason.
13. Kosning fulltrúa á aðalfund Dvalarheimilis aldraðra í Þingeyjarsýslum til næstu fjögurra ára: Kosinn var Steinþór Heiðarsson og til vara var kosinn Eiður Árnason.
14. Kosning fulltrúa á aðalfund Sorpsamlags Þingeyinga til fjögurra ára: Aðalfulltrúi Steinþór Heiðarsson og til vara Eiður Árnason.
15. Heimilisþrif og félagsþjónusta: Samningar um heimilisþrif og félagsþjónustu eru útrunnir og var oddvita falið að kanna hvort hægt væri að endurnýja samninga við Margréti Bjartmarsdóttur og Önnu Maríu Sigurðardóttur.
16. Kosningum í skólanefnd og hafnarnefnd og kosningu á fjallskilastjóra var frestað til næsta fundar.
17. Næsti fundur sveitarstjórnar var ákveðinn 25. júní næstkomandi klukkan 16.
18. Önnur mál:
A) Sólvangur: Ákveðið var að endurbyggja tröppur við bakinngang í Sólvang fyrir haustið.
B) Vegur að Tungulendingu: Samþykkt að láta lagfæra veginn sem allra fyrst, á kostnað hreppsins. Oddvita ennfremur falið að kanna möguleika á að koma veginum aftur inn á vegaskrá.
Fleira ekki bókað. Fundi slitið klukkan 18:00

