VEÐRIÐ Í DAG O.FL.
MÁNÁRBAKKI KÓPASKER  HEKLA KATLA               FRÉTTAVEFIR:  641.IS  640.IS Kópasker     AÐALSKIPULAG: 2008-2020
25.06.2010  |  Hreppsnefnd
 Fundur var haldinn í sveitarstjórn Tjörneshrepps föstudaginn 25. júní 2010, klukkan 16. Allir aðalfulltrúar mættir. Oddviti setti fund og stjórnaði honum. 

 

1. Aðalskipulag

Oddviti las bréf frá Skipulagsstofnun þar sem farið er fram á að skýrð verði nánar nokkur atriði í skipulaginu. Oddvita falið að hafa samband við Guðrúnu Jónsdóttur sem vann skipulagið fyrir Tjörneshrepp og vinna þessar lagfæringar í samráði við hana.

 

2. Félagsþjónusta

Skylt er að auglýsa eftir einstaklingum til að annast heimilisþrif og félagsþjónustu. Oddvita falið að auglýsa störfin á heimasíðu hreppsins og í Skránni í næstu viku. Umsóknarfrestur 2 vikur frá auglýsingu.

 

3. Kosning fjallskilastjóra

Kosningu hlaut Jón Heiðar Steinþórsson til næstu fjögurra ára.

 

4. Sólvangur – húsvarsla og þrif

Þrifin verða auglýst á heimasíðu hreppsins.

 

5. Laun og starfskjör

Laun oddvita: Mánaðarlaun 150.000,- og skrifstofukostnaður 40.000,- pr. mánuð. Laun v/ fundarsetu kr. 9000,- pr. fund. Bílastyrkur í samræmi við gjaldskrá sem skattstjóri gefur út.

 

6. Aðalfundir Dvalarheimilis aldraðra.og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga

Oddviti sat báða þessa fundi og sagði í stórum dráttum frá þeim. Fundargerðir berast síðar.

 

7. Minkaveiðar

Samningar eru lausir. Oddvita falið að kanna endurnýjun á samningum við Jón og Jóhann Gunnarssyni.

8. Fjöruvegur

Oddviti hefur samið við Eyþór Björnsson um lagfæringar á veginum niður í fjöruna og verður verkið unnið innan tíðar.

9. Vörslugirðing milli Tjörneshrepps og Húsavíkur

Oddvita falið að útvega mann til að lagfæra girðinguna.

 

Fleira ekki bókað. Fundi slitið klukkan 17:15

28.01.2012  |  Hreppsnefnd
28.12.2011  |  Hreppsnefnd
21.12.2011  |  Hreppsnefnd
19.11.2011  |  Hreppsnefnd
29.09.2011  |  Hreppsnefnd
08.07.2011  |  Hreppsnefnd
15.05.2011  |  Hreppsnefnd
30.03.2011  |  Hreppsnefnd
03.02.2011  |  Hreppsnefnd
09.01.2011  |  Hreppsnefnd
30.12.2010  |  Hreppsnefnd
12.12.2010  |  Hreppsnefnd
18.11.2010  |  Hreppsnefnd
29.08.2010  |  Hreppsnefnd
25.06.2010  |  Hreppsnefnd
18.06.2010  |  Hreppsnefnd
12.06.2010  |  Hreppsnefnd
22.05.2010  |  Hreppsnefnd
24.04.2010  |  Hreppsnefnd
24.03.2010  |  Hreppsnefnd