Fundur var haldinn í sveitarstjórn Tjörneshrepps sunnudaginn 29. ágúst 2010, klukkan 13:00
Allir aðalfulltrúar mættir.
Oddviti setti fund og stjórnaði honum.
1. Aðalskipulag.
Farið var yfir athugasemdir frá Skipulagsstofnun í bréfi dagsettu 18. júní 2010 og þær samþykktar. Samþykkt að auglýsa skipulagstillöguna.
2. Skólamál.
Nýir ábúendur hafa flutt í Héðinshöfða II, þar á meðal barn á grunnskólaaldri, sem foreldrar óska eftir að verði áfram í skóla á Húsavík með sínum skólasystkinum. Samþykkt að verða við erindinu og greiða almennan skólakostnað samkvæmt gjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga; fyrir skólaárið 2010-2011 kr. 453.150,- eða kr. 47.700,- á mánuði og mötuneytiskostnað kr. 20.000,- fyrir skólaárið. Þá var samþykkt að Tjörneshreppur greiði foreldrunum akstursstyrk, kr. 6000,- á mánuði fyrir akstur barnsins til og frá skóla.
3. Erindi frá Greiðri leið ehf.
Fyrirhugað er að auka hlutafé félagsins um helming eða 100 milljónir króna samkvæmt viljayfirlýsingu og stofnað verði nýtt hlutafélag sem Greið leið ehf. eigi 49% í á móti 51% ríkisins. Markmiðið er að gera jarðgöng undir Vaðlaheiði. Sveitarstjórn samþykkti að hreppurinn yrði áfram eigandi að Greiðri leið ehf. í sama hlutfalli og verið hefur, þ.e. 0,30 prósent.
4. Viðhald Tungugerðisréttar.
Fjallskilastjóri óskar eftir samþykki sveitarstjórnar fyrir því að leggja 2 dagsverk í endurbætur á Tungugerðisrétt. Erindið samþykkt.
5. Kosning jafnréttisnefndar.
Kosningu hlutu Sigrún Ingvarsdóttir, Árni Viðar Kárason og Anna María Sigurðardóttir.
6. Kosning fulltrúa í verkefnisstjórn um sameiningarkosti á svæði Eyþings.
Kosningu hlutu: Steinþór Heiðarsson, og til vara Eiður Árnason.
7. Erindi frá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
Samþykkt að verða við erindinu og styðja framtakið með kr. 1000,- pr. íbúa.
8. Fundargerð aðalfundar Dvalarheimilis aldraðra í Þingeyjarsýslum sf.
Oddviti lagði fram og kynnti fundargerð aðalfundar Hvamms.
Fundargerð lesin og samþykkt.
Fleira ekki bókað og fundi slitið klukkan 15:30

