Fundur var haldinn í sveitarstjórn Tjörneshrepps fimmtudaginn 29. september kl. 16.15. Oddviti setti fund, bauð fundarmenn velkomna og stjórnaði fundi. Allir sveitarstjórnarmenn voru mættir.
1. Húsaleigubætur:
Samþykkt að greiða húsaleigubætur til námsmanna samkvæmt reglugerð um húsaleigubætur nr. 378/2008.
2. Söltunarhús:
Borist hefur fyrirspurn um möguleg kaup á söltunarhúsinu við Tungulendingu. Oddvita falið að grennslast fyrir um afstöðu landeigenda til málsins.
3. VerkNaust:
Oddviti kynnti málefni sem verið hafa á dagskrá verkefnisstjórnar vegna atvinnuuppbyggingar á Norðausturlandi.
4. Tryggingar hreppsins:
Oddviti kynnti bréf frá Sjóvá, þar sem félagið óskar eftir að gera tilboð í tryggingar hjá sveitarfélaginu fyrir næstu endurnýjun. Samþykkt að leita tilboða hjá öllum stærstu tryggingafélögunum.
5. Bókhaldsmál:
Oddviti óskaði eftir heimild til að ráða aðstoðarmann við að færa bókhald hreppsins. Samþykkt var að verða við beiðninni.
6. Húsakönnun:
Oddviti upplýsti að Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt, hafi verið ráðin til að framkvæma húsakönnun í hreppnum.
7. Bréf frá Kirkjukór Húsavíkur:
Oddviti kynnti bréf frá kórnum þar sem farið er fram á ferðastyrk vegna Reykjavíkurfarar. Samþykkt að styrkja kórinn um kr. 75.000,-
Fleira ekki bókað. Fundi slitið kl. 17:30.

