VEÐRIÐ Í DAG O.FL.
MÁNÁRBAKKI KÓPASKER  HEKLA KATLA               FRÉTTAVEFIR:  641.IS  640.IS Kópasker     AÐALSKIPULAG: 2008-2020
19.11.2011  |  Hreppsnefnd

Fundur nr. 13 var haldinn í sveitarstjórn Tjörneshrepps laugardaginn 19. nóvember 2011 og hófst klukkan 13:30.

Oddviti setti fund og stjórnaði honum.

1. Skipan fulltrúa í vatnasvæðanefnd:

Samkvæmt nýjum lögum um stjórn vatnamála skulu settar á fót svokallaðar vatnasvæðanefndir sem m.a. eru skipaðar fulltrúum sveitarfélaga. Í erindi frá Skútustaðahreppi er leitað eftir áhuga sveitarfélaga í héraði á að skipa sameiginlega fulltrúa í nefndina. Ákveðið var að skoða málið frekar milli funda.

 

2. Erindi frá Lions-klúbbi Húsavíkur:

Lions-klúbbur Húsavíkur óskar eftir fjárstuðningi til samvinnuverkefnis félagsins og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á sviði forvarna gegn ristilkrabbameini. Málinu vel tekið og ákveðið að greiða kr. 25.000,- á ári næstu 5 ár til verkefnisins.
 

3. Erindi frá Snorra-verkefninu:

Ósk um fjárstyrk vegna ungmennaskipta milli landa. Erindinu hafnað.


4. Söltunarhús:

Tekið var fyrir svar eigenda Ytri-Tungu 1 við bréfi oddvita sem sent var landeigendum Ytri-Tungujarðanna samkvæmt samþykkt síðasta fundar. Hreppsnefnd telur að málið verði að vinna á grundvelli afsals frá 1964 enda hafi öllum skilyrðum þess samnings verið fullnægt og sú lóð, sem húsið stendur á, eign sveitarfélagsins.

Ekki bárust athugasemdir frá eigendum Ytri-Tungu 1A og Tunguvalla.

Borist hefur fyrirspurn frá öðrum aðila sem lýsir áhuga á að koma á fót nýrri starfsemi á sviði ferðaþjónustu í söltunarhúsinu.

Ákveðið var að stefna að því að boða þá sem lýst hafa áhuga á að kaupa húsið, á fund með sveitarstjórn í janúar nk.


5. Sólvangur:

Ákveðið var að fresta jarðvegsskiptum í bílaplani við Sólvang til næsta árs. Rætt var um aðrar framkvæmdir í Sólvangi á komandi ári og verða ákvarðanir þar um teknar á næsta fundi.


Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 15:30.

 

Fylgiskjal 1: Bréf eigenda Ytri-Tungu 1 til sveitarstjórnar, sent 14.11.2011:

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hreppsnefnd Tjörnesshrepps

v/Steinþór Heiðarsson, oddvita  

frá eigendum Ytri-Tungu 1

 

Varðandi hugmyndir um sölu á söltunarhúsi í Tungulendingu

Við þökkum fyrir tölvupóst dagsettan 18. oktober 2011 frá hreppsnefnd Tjörnesshrepps þar sem landeigendum í Ytri-Tungu er gefinn kostur á að tjá sig um mögulega sölu söltunarhússins í Tungulendingu.

Undirritaðir landeigendur hafa skilning á að ný atvinnustarfsemi í hreppnum geti verið ákjósanlegur kostur fyrir íbúana. Hins vegar höfum við áhyggjur af nokkrum atriðum sem að slíkri atvinnustarfsemi gætu snúið og óskum að koma eftirfarandi á framfæri:

 

1)      Við teljum að það hafi legið fyrir skrásetning um að jörðin myndi ganga aftur til fyrri eigenda ef  útgerð félli niður. Bryggjunni og öðrum lendingarmannvirkjum er ekki lengur haldið við af opinberum aðilum og teljum við því að afsalið frá 1964 hafi í raun fallið úr gildi, sé farið eftir skrásetningunni. Því miður höfum við ekki getað fundið þessa skrásetningu og getum því einungis vísað til eigin heilinda í því máli. Við teljum einnig að lesa megi í gegnum línurnar í afsalinu frá 1964, að landeigendur hafi eingöngu verið með útgerð í huga þegar jörðin var afhent hreppnum og ætti það að styðja upplýsingar okkar um að spildan ætti að ganga til baka til fyrri eigenda ef aðstæður breyttust.

 

2)      Verði ekki tekið mið af þeim upplýsingum okkar um að jörðin skyldi ganga aftur til fyrri eigenda við breytingu á starfseminni í lendingunni, óskum við með hliðsjón af að Ytri-Tungubændur létu jarðarspilduna af hendi til útgerðar án nokkurs endurgjalds, að athugað verði hvort ástæða sé til að veita núverandi eigendum jarðarinnar forkaupsrétt að húsinu

 

3)      Verði ekki tekið mið af ofangreindum atriðum, óskum við eftir að hugað verði að því hvort nærtækara sé að leigja húsið í stað þess að selja það til utanaðkomandi aðila. Aðalástæða þessa er að okkur finnst óæskilegt að hvorki hreppurinn né landeigendur í Ytri-Tungu hafi stjórn á hvernig sölu hússins og afnotum verði hagað í framtíðinni. Núverandi kaupandi gæti ákveðið að selja húsið til annarra aðila og undir nýja starfsemi. Einnig erum við uggandi yfir framtíð staðarins, ef að af samruna Norðurþings og Tjörnesshrepps yrði. Við teljum líka að húsið og önnur mannvirki á svæðinu hafi visst sögulegt gildi sem mæli með útleigu í stað sölu.

 

4)      Verði af sölu og/eða leigu á húsinu og lóðinni í kring förum við fram á að hreppurinn tryggi að landareign okkar verði ekki fyrir auknum átroðningi af þessum sökum og beri ábyrð á að hafa eftirlit með því. Einnig förum við fram á að hreppurinn athugi hvaða afleiðingar það hafi í för með sér að útbúa salernisaðstöðu fyrir stóra hópa fólks, vatnsaðburð og annað umrót sem óhjákvæmilega myndi fylgja slíkri starfsemi. Við óskum þess að hreppurinn ábyrgist að sjá um eftirlit með að þetta skerði ekki eða skaði okkar eign.

 

5)      Við bendum á mikilvægi þess að við sölu eða leigu á húsinu þurfi að setja nákvæm og ákveðin skilyrði tengd allri atvinnustarfsemi við núverandi aðstæður og í framtíðinni.

Einnig verði lóð sú sem tilgreind er í „kaupsamningnum“ mæld út og merkt.

 

6)      Frá fornu fari hefur útræði Ytri-Tungu og nágrennis verið frá Tungulendingu. Það verður því á engan hátt liðið af hálfu landeigenda að aðstaða til útræðis verði á einhvern hátt skert eða takmörkuð,og þess er einnig krafist að full aðstaða til geymslu báta og veiðarfæra verði á staðnum enda tilgangur „kaupsamningsins“ að tryggja staðinn sem verstöð til framtíðar.

 

     Með kveðju

 

Þórarinn Björn Steingrímsson

Kristbjörg Guðrún Steingrímsdóttir

Ólöf Anna Steingrímsdóttir

Birna Friðrika Steingrímsdóttir

 

14.02.2012  |  Hreppsnefnd
28.01.2012  |  Hreppsnefnd
28.12.2011  |  Hreppsnefnd
21.12.2011  |  Hreppsnefnd
19.11.2011  |  Hreppsnefnd
29.09.2011  |  Hreppsnefnd
08.07.2011  |  Hreppsnefnd
15.05.2011  |  Hreppsnefnd
30.03.2011  |  Hreppsnefnd
03.02.2011  |  Hreppsnefnd
09.01.2011  |  Hreppsnefnd
30.12.2010  |  Hreppsnefnd
12.12.2010  |  Hreppsnefnd
18.11.2010  |  Hreppsnefnd
29.08.2010  |  Hreppsnefnd
25.06.2010  |  Hreppsnefnd
18.06.2010  |  Hreppsnefnd
12.06.2010  |  Hreppsnefnd
22.05.2010  |  Hreppsnefnd
24.04.2010  |  Hreppsnefnd