Fundur nr. 14, haldinn í Sólvangi miðvikudaginn 21.12.2011 klukkan 20.
Oddviti setti fund og stjórnaði honum.
1. Útsvarsprósenta 2012 var ákveðin óbreytt, 14,05%
2. Fasteignaskattshlutfall 2012 var ákveðið óbreytt, 0,45%
3. Sorpsamlag Þingeyinga:
Oddviti gerði grein fyrir fundi með stjórn Sorpsamlagsins 15. desember sl., fjárhagsstöðu félagsins og starfseminni almennt.
4. Fjárhagsáætlun 2012 – fyrri umræða:
Oddviti lagði fram tillögu að fjárhagsáætlun næsta árs. Áætlunin rædd en bíður afgreiðslu við síðari umræðu.
5. Sorphirða og snjómokstur:
Aðalsteinn Guðmundsson hefur sagt upp samningi um þessa þjónustu.
Oddvita var falið að semja við Eyþór H. Björnsson um snjómokstur til eins árs skv. framkomnu tilboði hans.
Ákveðið að kanna kostnað við að leigja gáma undir heimilissorp og afgreiðsla sorphirðu bíður næsta fundar.
6. Skipan fulltrúa í vatnasvæðanefnd:
Samþykkt að taka boði Skútustaðahrepps um sameiginlegan fulltrúa í nefndina og verður það Ingibjörg Björnsdóttir, Skútustöðum.
Fleira ekki bókað. Fundi slitið kl. 21:15.

