Fundur nr. 15, haldinn í Sólvangi miðvikudaginn 28.12.2011 klukkan 13:30.
Oddviti setti fund og stjórnaði honum.
1. Sorphirða:
Ákveðið var að samið yrði við lægstbjóðanda í akstur á heimilissorpi til tveggja mánaða á meðan kannað yrði frekar um kostnað við gámaleigu. Fyrsta ferð á nýju ári verður 9. janúar
2. Fjárhagsáætlun 2012 – síðari umræða:
Fjárhagsáætlun ársins 2012 samþykkt. Niðurstöðutölur hennar eru kr. 22.050.000,- tekju- og gjaldamegin en framkvæmdaáætlun er upp á kr. 7.000.000,-
Fleira ekki bókað. Fundi slitið kl. 14:40.

